Ég leitaði í þokunni,
leitaði sannleiks,
leitaði fróðleiks.
Himintunglin horfin,
ég fæ ekkert svar.
Ég hnaut um margan stein,
uns mitt þerraðist magn.
Að kvöldi ég kom
undir háa hamra,
rista rúnum
roðnum blóði.
Við hamrana ég sá
hvar fornar rústir stóðu,
teygðust jafnt til himins
og niður í jörð.
Þar kraup ég
fyr steindyrum,
forneskjan efldi upp svörð,
og varð mér yfirsterkari.
Yfirgaf mitt lærða sjálf,
allt sem eg þykist vita.
Í mánaskini ég sagði svo,
galaði og söng:
,,Vakna þú völva,
vakna og vaki þú,
ég vil þig fregna
og þú skalt mig leiða
svo kalla ég þig til
undir römmum mána,
rís upp úr djúpinu,
vakna og vaki þú"
--
,,Þér skulit fórn færa
veð fram leggja,
þér skulið hanga,
og þér skulið deyja,
svo upp rísa,
öðru sinni,
þér skulið ferðast víða
en fyrst skaltu deyja."
Featuring members of Noothgrush, Graves at Sea, and more, the Oakland metal band juxtapose cavernous doom with spaced-out shoegaze. Bandcamp New & Notable Mar 21, 2024